Konur sem koma til okkar í Kvennaathvarfið eru úr öllum hópum samfélagsins, líka fatlaðar og langveikar konur. Í Kvennaathvarfinu er gott samstarf við táknmálstúlka, félagsráðgjafa, réttindagæslumenn fatlaðs fólks og túlka.

Aðgengi

Í núverandi húsnæði Kvennaathvarfsins er því miður ekki hjólastólaaðgengi. Þess vegna höfum við gert ráðstafanir til að allar konur sem nota hjólastól, göngugrind og/eða önnur hjálpartæki geti komið til okkar í dvöl og í viðtöl.

Dvöl:

Í áfangaheimili Kvennaathvarfsins er íbúð sem er sérstaklega útbúin fyrir konur sem nota hjólastól, göngugrind og/eða önnur hjálpartæki. Sú íbúð er notuð sem neyðarathvarf fyrir konur sem ekki geta nýtt sér núverandi húsnæði athvarfsins.

Kvennaathvarfið hefur gert samkomulag við hótel á Akureyri þar sem gott aðgengi er fyrir einstaklinga með hreyfihömlun. Þar geta konur verið á meðan þær nýta sér aðra þjónustu athvarfsins.

Þú þarft að hafa samband við okkur í athvarfinu og við förum yfir næstu skref. Hægt er að hafa samband í síma 561 1205 (athvarfið í Reykjavík) og 561 1206 (athvarfið á Akureyri) en síminn er opinn allan sólarhringinn.

Kvennaathvarfið í Reykjavík er með þennan tölvupóst kvennaathvarf@kvennaathvarf.is og þessa facebook síðu https://www.facebook.com/kvennaathvarf/

Kvennaathvarfið á Akureyri er með þennan tölvupóst nordurland@kvennaathvarf.is og þessa facebook síðu https://www.facebook.com/Kvennaathvarf.Nordurland

Viðtöl:

Hægt er að panta símaviðtal við ráðgjafa Kvennaathvarfsins en einnig er hægt að fá viðtal gegnum forritið Teams.

Ef kona vill mæta í viðtal þá er hægt að fara í Bjarkarhlíð við Bústaðarveg eða Bjarmahlíð í Aðalstræti 14 á Akureyri sem eru samstarfsaðilar Kvennaathvarfsins. Ráðgjafar athvarfsins hafa fasta viðtalstíma í Bjarkarhlíð og þar er gott aðgengi fyrir fólk með hreyfihömlun. Ráðstafanir hafa verið gerðar við félagsmálayfirvöld á Akureyri til að tryggja aðgengi fólks með hreyfihömlun í viðtöl í Bjarmahlíð.

Hægt er að hafa samband við Bjarkarhlíð í síma 553 3000 en þar er opið frá milli klukkan 9 og 17 alla virka daga. Það er líka hægt að hafa samband gegnum tölvupóst á bjarkarhlid@bjarkarhlid.is eða bóka viðtal á netinu https://noona.is/bjarkarhlid

Hægt er að hafa samband við Bjarmahlíð á Akureyri í síma 551 2520 en þar er opið frá kl 10 til 14 alla virka daga. Það er hægt að hafa samband gegnum tölvupóst á bjarmahlid@bjarmahlid.is eða bóka viðtal á netinu: https://bjarmahlid.is/opnunartimi/

Ætlar athvarfið að laga aðgengi?

  • Já en því miður sýnir úttekt verkfræðistofu að það er næstum ómögulegt að breyta húsnæði Kvennaathvarfsins í Reykjavík því húsið er svo gamalt.
  • Það hefur því verið ákveðið af stjórn Kvennaathvarfsins að byggja fyrsta Kvennaathvarfið á Íslandi sem stenst nútíma reglur um algilda hönnun og aðgengi, með stuðningi stjórnvalda í sérstaka fjárfestingarátakinu vegna Covid-19 faraldursins. Leitað hefur verið til Reykjavíkurborgar um aðstoð við að finna lóð undir nýja athvarfið.

Áfangaheimili Kvennaathvarfsins

  • Áfangaheimili er fyrir konur og börn sem eru að flýja ofbeldi. Þegar fólk er ekki lengur í hættu þarf það samt húsnæði og stuðning.
  • Í húsinu eru 18 leiguíbúðir og eru allar íbúðirnar hannaðar eftir algildum stöðlum.
  • 2 íbúðir til viðbótar eru sérstaklega útbúnar fyrir konur sem nota hjólastól, göngugrind og/eða önnur hjálpartæki. Þær íbúðir eru notaðar sem neyðarathvarf fyrir konur sem ekki geta nýtt sér núverandi húsnæði athvarfsins.
  • Áfangaheimilið var opnað í lok sumars árið 2021.

Hvernig er aðgengið í Kvennaathvarfinu í Reykjavík?

  • 3 tröppur eru að inngangi Kvennaathvarfsins á neðri hæð.
  • Á neðri hæð eru svefnherbergi og salerni. Þar er ekki eldunaraðstaða og ekki sturtuaðstaða.
  • Á efri hæð hússins eru svefnherbergi. Þar er stofa, eldhús, salerni og sturtuaðstaða. Þar er eitt sjúkrarúm.
  • 7 tröppur eru að inngangi Kvennaathvarfsins á efri hæð.

Hvernig er aðgengið í Kvennaathvarfinu á Akureyri?

  • 1 trappa að inngangi, þar er forstofa og stigi upp á aðra hæð hússins
  • Á efri hæð eru svefnherbergi, stofa, eldhús, salerni og sturtuaðstaða.
  • 14 tröppur eru upp á aðra hæð

 

Hér fyrir neðan eru myndir af 1) Kvennaathvarfinu í Reykjavík, 2) Bjarkarhlíð við Bústaðarveg, 3) Kvennaathvarfinu á Akureyri og 4) Bjarmahlíð í Aðalstræti á Akureyri.

1) Hér eru myndir af aðgengi í Kvennaathvarfinu í Reykjavík.

 

2) Aðgengi að Bjarkarhlíð við Bústaðarveg. Þar er gott aðgengi fyrir fólk sem notar hjólastól, göngugrind og/eða önnur hjálpartæki. Þar er hellulagður stígur af bílastæði sem liggur að trépalli. Trépallurinn er alveg upp við húsið, það er stór hurð og aflíðandi þröskuldur inn í húsið. Gott aðgengi er að salerni, stofu og eldhúsi í Bjarkarhlíð.

 

3) Myndir úr Kvennaathvarfinu á Akureyri. Það er eitt þrep að útihurð og 14 þrep upp á efri hæð hússins. Öll herbergin ásamt eldhúsi og baði eru á efri hæðinni.

4) Myndir úr Bjarmahlíð Aðalstræti 14, Akureyri. Þar er ekki gott aðgengi fyrir fólk sem notar hjólastól, göngugrind og/eða önnur hjálpartæki. Þar eru brattir stigar, þröngar hurðir og háir þröskuldar.

Myndir frá aðstöðunni hjá Fjölskyldusviði Akureyrarbæjar, Glerárgötu 26 – þar er aðgengi fyrir fólk með hreyfihömlun og þar er hægt að koma í viðtal til ráðgjafa Bjarmahlíðar.