Ég vissi ekki hvert ég gæti leitað, fyrr en ég fann Kvennaathvarfið.

„Ég hafði búið á Íslandi í sex ár þegar vinkona mín benti mér á Kvennaathvarfið. Hún hafði orðið vör við ýmis merki ofbeldis á heimilinu en ég vissi lítið um þau úrræði sem eru til staðar í íslensku samfélagi.

Ég hafði líka verið háð íslenskum eiginmanni mínum á ýmsan hátt, til dæmis fjárhagslega og lagalega.

Eftir að hafa skoðað heimasíðu athvarfsins ákvað ég að leita þangað í dvöl með börnin mín tvö.

Aðstoðin í Kvennaathvarfinu var meiri en ég hefði getað ímyndað mér. Ekki nóg með að þar sé veitt húsaskjól heldur líka andlegur stuðningur. Við höfum einhvern til að leita til allan sólarhringinn og það tel ég mjög mikilvægt.

Auk þess er hægt að fá ráðgjöf og upplýsingar um úrræði og líka áframhaldandi viðtöl eftir að dvöl lýkur.“

Þessi saga sýnir okkur hversu einangruð staða kvenna getur verið þegar þær þekkja ekki úrræðin í samfélaginu, minnir hún líka á hversu mikilvægt er að konur og börn fái skjól, ráðgjöf og stuðning þegar þau leita sér hjálpar. Stuðningur við starf Kvennaathvarfsins gerir það mögulegt að veita þessa aðstoð þegar hennar er mest þörf.

Með þínum stuðningi gerir þú okkur kleift að hafa athvarfið opið allan sólarhringinn,veita ráðgjöf og hlúa að börnum og mæðrum á þeirra erfiðustu stundum.