Ég missti allt fjárhagslega en fann leið út úr sambandinu.
„Ég var fráskilin og stóð vel fjárhagslega þegar ég kynntist manninum sem ég er nú að skilja við. Í dag er ég gjaldþrota og að bíða eftir tíma hjá umboðsmanni skuldara. Ég veit varla hvernig þetta gerðist.
Maðurinn flutti til mín og fljótlega seldi ég íbúðina mína til að kaupa aðra með honum. Einhverju seinna seldi ég bílinn minn og við keyptum okkur annan saman. Ég vissi svo sem aldrei almennilega hvernig hann stóð fjárhagslega en þegar ég horfi til baka fylgdi honum mikil óreiða í peningamálum.
Hann var að kaupa fáránlega hluti sem ég skildi ekki og einhvern veginn gerðist það að ég var farin að gefa veð. Eftir að við keyptum saman vorum við bæði skráðir eigendur þótt að ég hafi lagt fram mest alla peningana.
Svo vaknaði ég upp við vondan draum einn daginn. Húsið var að fara á uppboð, afborganir á bílnum í vanskilum og bíllinn glataður. Fullt af öðrum skuldum. Ég, sem hafði alltaf verið svo passasöm í fjármálum.
Ég var búin að missa allt sem ég átti þegar ég kynntist honum og komin í gjaldþrot. Þetta var eins og að lenda í hvirfilbyl.
Eftir að hafa verið í viðtölum hjá ráðgjafa í Kvennaathvarfinu sé ég betur hvernig þetta gerðist, þó ég skilji það kannski aldrei til fulls. Þessi maður notaði mig svo sannarlega vel og beitti mig lúmsku ofbeldi og gaslýsingu. Hann lamdi mig aldrei – hann þurfti þess ekki. Hann stjórnaði á annan hátt.
Þrátt fyrir erfiðleikana sem ég stend frammi fyrir er ég fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa komist út úr þessu. Ég vona að ég þurfi aldrei aftur að sjá þennan mann eða heyra af honum.“
Þótt sagan sýni hversu djúp spor fjárhagslegt og andlegt ofbeldi getur skilið eftir sig, minnir hún einnig á að með stuðningi og ráðgjöf er hægt að stíga út úr slíkum aðstæðum. Stuðningur við starf Kvennaathvarfsins gerir það mögulegt að veita konum ráðgjöf, öryggi og leið út úr ofbeldissamböndum.

