Netspjall Kvennaathvarfsins

Viltu spjalla við ráðgjafa?

Ertu með spurningar varðandi ofbeldi í nánum samböndum? Hefur þú orðið fyrir ofbeldi eða grunar þig að þú sért í ofbeldissambandi? Hér getur þú spjallað við ráðgjafa.

Spjallið er opið alla virka daga kl. 15:00-16:00.  Þú opnar spjallið með því að smella á hringinn neðst í hægra horninu – en hann birtist aðeins þegar að spjallið er opið.  Þú getur einnig fengið ráðgjöf allan sólarhinginn í síma 561 1205 eða sent póst á kvennaathvarf@kvennaathvarf.is

Er ég í ofbeldissambandi?

Með því að smella á hnappinn að neðan geturðu lesið meira um ólíkar birtingamyndir ofbeldis, fundið reynslusögur og svarað spurningum sem aðstoða þig við að skoða hvort þú sért í ofbeldissambandi.