Í ofbeldissambandi geta skapast hættulegar aðstæður og því mikilvægt að huga að öryggisáætlun.
Hér eru nokkur mikilvæg skref við gerð öryggisáætlunar:
- Hvert er öryggisnet mitt – stuðningur frá fjölskyldu eða vinum – gæti ég forðað mér þangað?
- Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði og hvert þú getur leitað skjóls, jafnt að nóttu sem degi.
- Ef börn eru á heimilinu þá gera áætlun um hvernig hægt er að taka þau með.
- Ákveða „leyniorð“ sem fjölskylda og vinir vita að þýðir að hringt sé á lögreglu.
- Kenna börnunum að nota 112 í neyðartilvikum.
- Vera búin að hugsa flóttaleið – hvernig kemst ég fljótt og örugglega út – hvaða hurð/glugga/stiga/lyftu er best að nota?
Praktísk mál
- Pakka nauðsynjum fyrir þig og börnin í ferðatösku – geyma töskuna hjá einhverjum sem þú treystir.
- Huga að því hvernig best er að ná börnum útúr aðstæðum.
- Geymdu smá upphæð í peningum sem þú gætir þurft að nota í neyðartilvikum.
- Hvað vita nágrannarnir. Eiga þeir að koma til aðstoðar/hringja á lögreglu ef t.d. hávaði berst frá íbúðinni?
- Hafa skilríki (vegabréf, dvalarleyfi, atvinnuleyfi, ökuskírteini) á öruggum stað.
- Hvaða lagalegu úrræði get ég nýtt mér í þessari stöðu?
Gott að hafa í huga
- Öll eigum við rétt á lífi án ofbeldis.
- Ofbeldi er alltaf á ábyrgð þess sem beitir því.
- Áhrif og afleiðingar ofbeldis á börn eru alvarlegar, jafnvel þótt þau hvorki sjái ofbeldið né séu líkamlega beitt ofbeldi.
- Ýmsar leiðir eru til út úr ofbeldissambandi. Ein leið er stuðningur Kvennaathvarfsins, þar er opið allan sólarhringinn. Síminn er: 561 1205
Á síðu 112 má finna ítarlegri leiðbeiningar við gerð öryggisáætlunar https://www.112.is/oryggisaetlun
Hér má finna helstu þjónustuaðila: Þjónustuaðilar


