Það eru fjölmargar góðar ástæður til að hlaupa og styrkja starfsemi Kvennaathvarfsins

Reykjavíkurmaraþonið fer fram 22. ágúst næstkomandi.

Við erum til staðar með þér. Við ráslínuna

Með því að hlaupa fyrir Kvennaathvarfið hjálpar þú okkur að vera til staðar þegar mest reynir á. Hvert skref skiptir máli hvort sem þú hleypur stutt, langt, hratt eða hægt.

Í fyrra dvöldu 239 konur og börn í Kvennaathvarfinu. Bak við hverja tölu er manneskja sem þurfti öryggi og stuðning.

Skráðu þig í hlaupið, veldu Kvennaathvarfið sem styrktarfélag og fáðu vini, fjölskyldu og vinnufélaga til að heita á þitt málefni!