Sum mynstur veita skjól
á meðan önnur
skaða þig.
SKJÓL er sérhönnuð íslensk prjónauppskrift sem gegnir þreföldu hlutverki: fjáröflun, fræðsla og samstaða. Með hverri lykkju styrkir þú starfsemi Kvennaathvarfsins og sendir skilaboð um að engin kona eigi að standa ein.
Mynstur í ofbeldissamböndum
Við sjáum mynstur í garninu sjálfu; í lykkjum og línum. Í ofbeldissamböndum eru einnig til mynstur sem þó sjást síður. Ofbeldi í nánum samböndum er sjaldnast einangrað tilvik, heldur endurtekið mynstur. Slík mynstur einkennast oftast af einangrun, stjórnun og ótta.
Til að rjúfa mynstrið þarf að þekkja það
Ofbeldismynstrið er falið mynstur sem þróast og stigmagnast.
Það gerist sjaldan allt í einu. Það getur þróast hægt, byrjað sem eitthvað smávægilegt en tekið smám saman yfir líf þolenda. Þess vegna getur verið erfitt að koma auga á mynstrið þegar maður er staddur í miðri flækjunni.
Ofbeldi í nánum samböndum getur verið andlegt, líkamlegt, fjárhagslegt, stafrænt og kynferðislegt og oftast tvinna gerendur saman fleiri en einni tegund. Einangrun og fjárhagslegt ofbeldi loka yfirleitt undankomuleiðum, á meðan líkamlegt ofbeldi kemur gjarnan seinna fram, þegar mynstrið er þegar orðið rótgróið og flókið.
Að þekkja þetta mynstur hjálpar okkur að skilja hvernig ofbeldi þróast og hvers vegna það getur verið erfitt að rjúfa mynstrið!
Uppsöfnun spennu
Spenna safnast upp í sambandinu áður en hún brýst út.
Árásarstigið
Þegar spennan sýður upp úr koma vissar birtingamyndir ofbeldis skýrar fram. Það getur þá t.d. verið líkamlegt, andlegt eða kynferðislegt ofbeldi. Þolandinn getur upplifað mikinn ótta, ringulreið og vanmátt.
Hveitibrauðsdagar
Eftir að upp úr sýður fylgja oft tímabil þar sem gerandinn sýnir eftirsjá, biðst afsökunar og lofar að hlutirnir muni breytast. Hann getur verið sérstaklega umhyggjusamur eða gefið gjafir, sem vekur von hjá þolandanum um að ofbeldið sé liðið hjá.
Afneitun
Eftir hveitibrauðsdagana kemur oft tímabil þar sem reynt er að útskýra eða gera lítið úr því sem gerðist. Gerandinn getur afsakað hegðun sína, kennt öðrum um eða sagt að atvikið hafi verið einstakt. Þetta stig getur leitt til þess að ofbeldið virðist ekki eins alvarlegt og það var í raun.
Að meðaltali tekur það þolendur ofbeldis í nánum samböndum 6 til 7 tilraunir að yfirgefa ofbeldissamband til fulls.
Að rjúfa mynstrið er sjaldan einfalt
Að slíta sig frá geranda er sjaldan einföld ákvörðun, það er flókið og sársaukafullt ferli. Rannsóknir sýna að það tekur þolendur ofbeldis í nánum samböndum að meðaltali sex til sjö tilraunir að yfirgefa ofbeldissamband til fulls.
Af hverju er það svona erfitt? Vegna þess að ofbeldi í nánum samböndum er kerfisbundið mynstur. Það byggir á andlegri einangrun og stjórnun sem brýtur niður sjálfsmyndina hægt og bítandi. Þegar að þolandi reynir að slíta sig út úr ofbeldissambandi þá getur tekið við tímabil algjörs umróts þar sem viðkomandi upplifir mikið óöryggi og ótta. Það er einmitt þess vegna sem stuðningsnetið í kringum þolendur er svo lífsnauðsynlegt.
Kvennaathvarfið er griðastaður þolenda í þessu umróti. Við erum til staðar í fyrstu tilraun, fimmtu tilraun og áttundu tilraun. Við bjóðum skjól, ráðgjöf og öruggt rými til að byggja upp nýtt líf og nýja sjálfsmynd.
Með herferðinni Rjúfum mynstrið notum við sameiginlegt handverk sem andstæðu við þá einangrun sem þolendur ofbeldis upplifa. Prjónið verður þannig táknræn leið til að endurheimta stjórn, skapa tengsl og sýna samstöðu.
Hver lykkja leiðir gott af sér
Þótt uppskriftin sé sú sama er verkið alltaf þitt. Val þitt á garni, litum og áferð setur þinn eigin svip á verkið. Með prjónaverkinu þínu sendir þú skilaboð um að þú standir með þolendum ofbeldis í nánu sambandi.
64% kvenna með reynslu af ofbeldi segja að gerandinn hafi einangrað þær frá fjölskyldu og vinum. Prjónamynstrið SKJÓL er merki um stuðning og samstöðu með konum sem búa við ofbeldi. Handverk og hópprjón skapa tengsl og vinna að því að rjúfa einangrun. Þegar að einangrunin rofnar verður auðveldara að leita hjálpar.
Um höfund uppskriftar
Tinna Laufdal er stofnandi Tiny Viking. Hún er menntaður textílkennari og fatahönnuður og hefur prjónað frá unga aldri. Tinna hefur margra ára reynslu af textílkennslu og hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir handavinnu. Hún er jafnframt mikil talskona þess að fólk finni sinn eigin stíl og skapi sín eigin föt og fylgihluti. Endurnýting og sjálfbærni eru henni einnig hugleikin og endurspeglast það í nálgun hennar á hönnun og kennslu.
Tiny Viking20% afsláttur af byrjenda prjónanámskeiði hjá Tiny Viking

