Sum mynstur veita skjól
á meðan önnur skaða þig.

Heimilisofbeldi er sjaldnast einstakt atvik og getur tekið á sig margar myndir. Það hefur þó oftast alvarlegar afleiðingar fyrir þau sem fyrir því verða. Flókið mynstur heimilisofbeldis getur haft skaðleg og langvarandi áhrif á börnin sem við það búa.

Með því að prjóna barnaSKJÓL getur þú sýnt þolendum samstöðu og um leið vakið athygli á alvarlegum áhrifum heimilisofbeldis á börn.

Með því að kaupa uppskrift af barnaSKJÓLI ertu að tryggja áframhaldandi stuðning og þjónustu við börn sem leita til Kvennaathvarfsins með mæðrum sínum.

Börn og ofbeldi

Heimilisofbeldi getur haft alvarleg og langvarandi áhrif á börn. Þessi alvarlegu áhrif geta komið fram þótt börnin sjálf verði ekki fyrir beinu ofbeldi eða verða vitni að því. Að heyra þegar einhver er beittur ofbeldi, sjá ummerki eftir ofbeldi eða skynja spennu og ótta getur valdið skaða.

Viðtal við ráðgjafa barna

Skoðaðu líka SKJÓL fyrir fullorðna

Árið 2025

Tölurnar sýna glöggt hversu stór hluti skjólstæðinga Kvennaathvarfsins eru börn:

103 börn leituðu skjóls

Árið 2025 dvöldu samtals 103 börn í Kvennaathvörfunum í Reykjavík og á Akureyri.

Meðalaldurinn er aðeins 6 ár

Yngsta barnið sem dvaldi í athvarfinu árið 2025 var einungis nokkurra vikna gamalt, en það elsta rétt að verða 18 ára.

Að hefja nýtt líf

Tæpur helmingur kvenna sem dvelja í Kvennaathvarfinu koma þangað með börn sín með sér. Mæður með börn dvelja almennt lengur í athvarfinu en barnlausar konur (að meðaltali 31 dag í Reykjavík). Þetta getur skýrst af því að það er oft flóknara fyrir konur með börn að greiða úr praktískum málum áður en þær geta hafið nýtt líf. Lengsta samfellda dvöl barns í athvarfinu árið 2025 voru 186 dagar.

Hvað á að gera ef barn segir frá ofbeldi?

Þegar barn sýnir þér það traust að segja frá ofbeldi, skipta viðbrögð þín miklu máli. Kvennaathvarfið mælir með því að fylgja þessum mikilvægu skrefum:

1

Trúðu barninu

Hlustaðu og sýndu stuðning án þess að efast.

2

Tryggðu öryggi þess

Gakktu úr skugga um að barnið sé komið í öruggt skjól.

3

Láttu barnið vita að það gerði rétt

Sýndu því að það krafðist mikils hugrekkis að segja frá og staðfestu að það hafi gert rétt.

4

Ofbeldið er aldrei barninu að kenna

Útskýrðu skýrt og milliliðalaust fyrir barninu að það beri enga ábyrgð á því sem gerðist.

5

Hafðu samband við barnavernd

Samkvæmt barnaverndarlögum er það lagaleg skylda okkar allra að tilkynna til barnaverndar (í gegnum 112) ef okkur grunar að barn búi við ofbeldi eða óviðunandi aðstæður. Fyrir þau sem starfa með börnum er þessi skylda enn ríkari og gengur framar öllum reglum um þagnarskyldu.

Prjónaðu skjól og rjúfðu mynstur heimilisofbeldis

Með því að kaupa uppskriftina að barnapeysunni SKJÓL ertu að skapa öruggara umhverfi fyrir börn sem búa við ofbeldi.

Allur ágóði af sölu uppskriftarinnar rennur óskertur til Kvennaathvarfsins. Þessir fjármunir tryggja að athvarfið getur boðið upp á faglegan stuðning við börn og mæður þeirra. Þar er lögð áhersla á að börn hafi rödd þegar verið er að vinna með stöðu þeirra og líðan. Það að barni líði vel í Kvennaathvarfinu getur aukið líkurnar á því að hægt verði að rjúfa mynstur heimilisofbeldis.

Tinna Laufdal

Um höfund uppskriftar

Tinna Laufdal er stofnandi Tiny Viking. Hún er menntaður textílkennari og fatahönnuður og hefur prjónað frá unga aldri. Tinna hefur margra ára reynslu af textílkennslu og hefur alla tíð haft mikla ástríðu fyrir handavinnu. Hún er jafnframt mikil talskona þess að fólk finni sinn eigin stíl og skapi sín eigin föt og fylgihluti. Endurnýting og sjálfbærni eru henni einnig hugleikin og endurspeglast það í nálgun hennar á hönnun og kennslu.

Tiny Viking
Afsláttarkóði skjól

20% afsláttur af byrjenda prjónanámskeiði hjá Tiny Viking

Þín lykkja getur skipt öllu máli