Spjallsvæði
Spjallið er netspjall fyrir allar þær konur sem hafa spurningar varðandi ofbeldi í nánum samböndum. Þú opnar spjallið með því að smella á hringinn neðst í hægra horni.
Þú kemur inn á eigin forsendum þar sem trúnaði og nafnleynd er heitið og færð spjall við ráðgjafa Kvennaathvarfsins til að fá stuðning, ráðgjöf og/eða upplýsingar.
Spjallið er einnig fyrir þau sem hafa áhyggjur af aðstandenda í ofbeldissambandi.


