Frá Samtökum um kvennaathvarf; helstu tölur frá árinu 2019
Árið 2019 dvöldu 144 konur og 100 börn í Kvennaathvarfinu. Konur dvöldu í athvarfinu frá einum degi uppí 236 daga, að meðaltali í 30 daga. Börn dvöldu í athvarfinu í frá einum degi upp í 155 daga, að meðaltali í 39 daga. Að meðaltali dvöldu 23 íbúar í athvarfinu á dag, 12 konur og 11 börn.
Að auki komu 294 konur í samtals 545 viðtöl án þess að til dvalar kæmi. Samtals komu því 438 konur í athvarfið í viðtöl eða dvöl á árinu. Til viðbótar hittu ráðgjafar athvarfsins 214 einstaklinga í viðtölum í Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis.
Í heildina voru 67% kvenna sem komu í Kvennaathvarfið á árinu íslenskar (74% þeirra sem komu í viðtöl og 51% dvalarkvenna), 74% kvennanna eru af höfuðborgarsvæðinu. Konurnar voru á aldrinum 18-81 árs en börnin frá nokkurra daga gömlum upp í 16 ára.
Flestar konur nefna fleiri en eina ástæðu komu.
| Ástæða komu | Hlutfall |
| Andlegt ofbeldi | 93% |
| Líkamlegt ofbeldi | 60% |
| Fjárhagslegt ofbeldi | 48% |
| Kynferðislegt ofbeldi | 37% |
| Ofbeldi gegn börnum | 35% |
| Morðhótanir | 26% |
| Kyrkingatak | 25% |
| Stafrænt ofbeldi | 20% |
| Eltihrellir | 16% |
Aldrei hafa fleiri konur nefnt ofbeldi gegn börnum sem ástæðu komu í athvarfið. Fram kemur í svörum kvennanna að alls búa 349 börn undir 18 ára að aldri á ofbeldisheimilunum sem þær koma af. Einungis 27% barnanna höfðu fengið einhverja aðstoð vegna þess ofbeldis sem barnið bjó við á heimili sínu en 44% kvennanna sögðu að barnavernd hefði verið tilkynnt um ofbeldið.
Alls voru 12% kvennanna með líkamlega áverka við fyrstu komu í athvarfið (23% dvalarkvenna og 6% kvenna í viðtölum) en rúmlega helmingur (53%) sögðu frá því að hafa einhvern tíma hlotið líkamlega áverka í sambandinu. 54% sögðust hafa óttast um líf sitt í sambandinu, 42% sögðu lögreglu hafa komið á vettvang ofbeldisins í eitt eða fleiri skipti, 15% kært ofbeldið til lögreglu, meirihluti (60%) þeirra mála var enn í vinnslu en dómur hafði fallið í 5% málanna, 16% kærðra mála hafði verið verið felld niður, 5% höfðu fengið nálgunarbann og 5% neyðarhnapp.
Hér má sjá upplýsingar um það hvert konurnar fóru að lokinni dvöl í athvarfinu.
| Afdrif dvalarkvenna | Hlutfall |
| Ættingjar / vinir | 17% |
| Heim til ofbeldismannsins | 15% |
| Nýtt húsnæði | 13% |
| Heim, ofbeldismaðurinn ekki þar | 12% |
| Úr landi | 8% |
| Sjúkrastofnun | 3% |
| Annað | 8% |
| Ekki vitað / í athvarfi yfir áramót | 23% |
Gerendurnir voru að 95% karlmenn, 72% eru af íslenskum uppruna og voru þeir á aldrinum 18-83ja ára.
Hér má sjá tengsl þeirra við konurnar.
| Tengsl við geranda | Hlutfall |
| Eiginmaður | 26% |
| Sambýlismaður | 13% |
| Kærasti | 6% |
| Fyrrverandi eiginmaður | 13% |
| Fyrrverandi sambýlismaður | 15% |
| Fyrrverandi kærasti | 11% |
| Annar | 15% |
Nánari upplýsingar veitir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra athvarfsins
sigthrudur@kvennaathvarf.is eða í síma 869 7225

