Símasöfnun fyrir Kvennaathvarfið
Á ákveðnum tímum ársins hringjum við út til einstaklinga og bjóðum þeim að styðja við mikilvægt starf Kvennaathvarfsins með frjálsum framlögum. Hægt er að velja um að fá senda bankakröfu eða greiða með kreditkorti.
Markmiðið er að tryggja að við getum áfram veitt öruggt skjól og faglega aðstoð fyrir konur og börn sem búa við heimilisofbeldi – allan sólarhringinn, allt árið um kring.
Símtölin eru framkvæmd af traustum samstarfsaðilum fyrir okkar hönd. Upplýsingar um símanúmerin sem hringt er úr má finna á vef þeirra simstodin.is.
Við þökkum kærlega fyrir þann stuðning sem gerir okkur kleift að vera til staðar – þegar mest á reynir.
Vinir Kvennaathvarfsins
Líkt og kemur fram í ársreikningi okkar eru það Vinir Kvennaathvarfsins, fólk sem styrkir reglulega, stærsti hluti rekstrartekna okkar. Þeirra stuðningur gerir okkur kleift að hafa athvarfið opið allan sólarhringinn, veita ráðgjöf og hlúa að börnum og mæðrum á þeirra erfiðustu stundum. Stuðningur Vina Kvennaathvarfsins hjálpar einnig við uppbyggingu nýs athvarfs sem opnar sumarið 2026, hannað með fjölbreyttar þarfir kvenna og barna í huga.

