Skilgreiningar á ofbeldi í nánum samböndum

Ofbeldi í nánum samböndum einnig stundum kallað heimilisofbeldi  er ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hálfu einhvers sem er honum nákominn, skyldur eða tengdur, eins og maki, barn, foreldri, barnsfaðir, systkini eða forráðamaður. „Maki“ getur verið núverandi eða fyrrverandi eiginmaður/eiginkona, kærasti/kærasta eða sambúðaraðili. Þolandi og gerandi þurfa hvorki að búa saman né vera gift til að ofbeldið flokkist sem ofbeldi í nánum samböndum. Ofbeldi í nánum samböndum þarf heldur ekki að vera bundið við heimili geranda eða þolanda.

Líkamlegt ofbeldi
Líkamlegt ofbeldi er þegar líkamlegu afli er beitt gegn öðrum einstaklingi, hvort sem líkamlegur skaði hlýst af eða ekki. Líkamlegt ofbeldi er líka þegar haldið er aftur af líkamlegum þörfum viðkomandi. Algengt er að líkamlegu ofbeldi sé beitt í kjölfar andlegs ofbeldis sem hefur verið til staðar um tíma.

Dæmi um líkamlegt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:

  • Heldur þér í gíslingu.
  • Kemur í veg fyrir að þú nærir þig.
  • Kemur í veg fyrir að þú náir almennilegum svefni.
  • Skaðar þig með t.d. hnífi, belti, byssu eða barefli.
  • Kemur í veg fyrir að þú getir tekið nauðsynleg lyf.
  • Sparkar/kýlir í hluti, hendir og/eða skemmir hluti.
  • Kemur í veg fyrir að þú getir farið og/eða komið þegar þú vilt.
  • Slær, kýlir, lemur, klórar, bítur, skallar, klípur, sparkar í, rífur í hár, hrindir, brennir, drekkir, kæfir, eða tekur þig kverkataki.

 

Andlegt ofbeldi
Andlegt ofbeldi getur verið í formi orðaskipta eða í formi líkamstjáningar. Samskiptin einkennast oft af niðurlægingu og er yfirleitt leið annars aðilans að ná stjórn á eða völdum yfir makanum.

Dæmi um andlegt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:

  • Öskrar á þig.
  • Uppnefnir þig.
  • Gerir lítið úr þér.
  • Hótar og/eða ógnar þér.
  • Segir þig ruglaða/geðveika.
  • Kennir þér um hegðun sína og líðan.
  • Einangrar þig frá vinum og fjölskyldu.
  • Treystir þér ekki til að taka ákvarðanir.
  • Lætur þér líða eins og þú sért föst í sambandinu.
  • Treystir þér ekki í kringum aðila af hinu kyninu.
  • Fylgist með ferðum þínum – hefur eftirlit með þér.
  • Kemur að tilfinningu hjá þér um yfirvofandi ofbeldi.
  • Gagnrýnir þig og/eða gerir lítið úr afrekum þínum eða vinnu.
  • Lætur þér líða þannig að þú þurfir virkilega á honum að halda.
  • Er móðgandi/særandi þegar hann er undir áhrifum áfengis/fíkniefna.
  • Notar áfengi/fíkniefni sem afsökun til að segja móðgandi/særandi hluti.
  • Áreitir þig stanslaust t.d. með skilaboðum, símhringingum og/eða heimsóknum.
  • Ætlar að „láta þér eitthvað að kenningu verða“ með því að t.d. banna þér að leita aðstoðar eftir rifrildi.
  • Niðurlægir þig og gerir grín að þér, hvort sem er í fjölmenni, fyrir framan vini/fjölskyldu eða þegar þið eruð tvö.

Kynferðislegt ofbeldi
 Á sér stað þegar einstaklingur er þvingaður til kynferðislegra athafna, gegn vilja og án samþykkis. Ofbeldið getur einnig birst sem kynferðislegt áreiti, pressa, suða og hóta t.d. hótun um kynferðislega myndbirtingu

Fjárhagslegt ofbeldi
Fjárhagslegt ofbeldi er leið til að stjórna makanum í gegnum fjárhag.

Dæmi um fjárhagslegt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:

  • Bannar þér að vinna.
  • Tekur launin þín af þér.
  • Skammtar þér peninga.
  • Skráir skuldir á þig en eignir á sig.
  • Kemur í veg fyrir að þú veljir þér starfsframa.
  • Eyðileggur persónulega muni þína viljandi.
  • Heldur upplýsingum um stöðu fjármála frá þér.
  • Ráðstafar sameiginlegum fjármunum í óþarfa eins og áfengi/fíkniefni eða eigin áhugamál án þess að ráðfæra sig við þig.

Stafrænt ofbeldi
Er þegar ofbeldi er beitt með notkun tækni, til dæmis senda skilaboð gegnum samfélagsmiðla, síma eða tölvupóst.

Dæmi um stafrænt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:

  • Skráir sig inná samfélagsmiðla á þínu nafni.
  • Stýrir því hver má vera vinur þinn t.d. á facebook og hver ekki.
  • Er með upplýsingar um staðsetningu þína, t.d. í gegnum símann.
  • Stýrir því hverja þú mátt tala við gegnum samfélagsmiðla eða í síma.
  • Sendir þér og þrýstir á þig að senda sér skilaboð af kynferðislegum toga.
  • Þrýstir á þig að senda sér nektar/kynlífsmyndir og/eða myndbönd af þér.
  • Skoðar símann þinn reglulega, skoðar myndir, skilaboð og símtalasögu.
  • Sendir þér nektar/kynlífs myndir og/eða myndbönd af sér, gegn þínum vilja.
  • Sendir stanslaust skilaboð gegnum síma/samfélagsmiðla og/eða hringir stanslaust.
  • Hótar að tala illa um þig eða bera út sögur í gegnum t.d. síma eða samskiptaforrit.
  • Heimtar að fá lykilorð þín til að geta skráð sig inná samfélagsmiðla eða bankareikninga.
  • Hótar að birta opinberlega nektar/kynlífsmyndir og/eða myndbönd af þér, eða senda til ættingja, vina eða vinnufélaga.

Afleiðingar ofbeldis

Þau sem búa við ofbeldi, hvaða birtingamynd þess sem er, finna fyrir afleiðingum þess. Afleiðingarnar geta komið fram á hvaða tímapunkti sem er, stundum jafnvel löngu síðar.

Meðal algengra afleiðinga má nefna svefntruflanir og truflun á matarlyst, ótti, skömm, sektarkennd, sjálfsefi, skapgerðabreytingar og lágt sjálfsmat. Einnig getur fólk upplifað áfallastreituröskun, kvíða, þunglyndi og sjálfsvígshugsanir.

Allt eru þetta eðlilegar afleiðingar við þeim óeðlilegu aðstæðum að vera í ofbeldissambandi.

Afleiðingar ofbeldis geta verið ýmisskonar og misalvarlegar og geta haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu þeirra sem fyrir ofbeldinu verða. því er mikilvægt að kynna sér þau úrræði sem standa til boða og fá aðstoð.

Ólík form og birtingarmyndir ofbeldis í nánum samböndum

Athugið að hér á eftir er einungis stiklað á stóru hvað varðar lýsingu, dæmi og afleiðingar ýmissa birtingarmynda ofbeldis. Samantektin er alls ekki tæmandi og er einungis til þess hugsuð að gefa hugmynd um tegundir ofbeldis og afleiðingar. Algengt er að form/birtingarmyndir ofbeldis skarist, til dæmis er líkamlegt ofbeldi einnig andlegt ofbeldi. Kynferðislegt ofbeldi er jafnframt líkamlegt í flestum tilfellum.

Mikið fræðsluefni um heimilisofbeldi er aðgengilegt á netinu. Til dæmis eru til nokkrar rannsóknir á íslensku um heimilisofbeldi.