Vafrakökustefna Kvennaathvarfsins

Þessi stefna lýsir þeim vefkökum (cookies) og sambærilegri tækni sem notað er á kvennaathvarf.is. Hún er viðauki við persónuverndarstefnu okkar.

Hvað er vefkaka?

Vefkaka er lítil textaskrá sem vefur vistar í tækinu þínu. Hún getur munað stillingar milli heimsókna eða safnað tölfræði um það hvernig vefurinn er notaður. Sumar vefkökur eru settar af okkur, aðrar af þriðja aðila.

Öryggi þitt

Ef þú vilt ekki skilja eftir slóð um heimsókn þína á þessum vef mælum við með því að nota huliðsglugga (private/incognito) eða að eyða vafraferlinum og vefkökum að heimsókn lokinni. Efst á hverri síðu er einnig hnappurinn LOKA / CLOSE sem færir þig samstundis á aðra vefsíðu.

Vefkökur sem þessi vefur notar

VefkakaSett afTilgangur
_ga, _ga_WZJ7J5SPXGGoogle AnalyticsTölfræði um heimsóknir og notkun vefsins, svo við getum bætt hann.
_gcl_auGoogle AdsMælir hvort heimsókn hafi komið í gegnum auglýsingu frá okkur.
_fbpMeta (Facebook, Instagram)Mælir árangur auglýsinga okkar og nýtist til að birta auglýsingar frá okkur á Facebook og Instagram.
sbjs_*Vefverslun (Sourcebuster)Skráir hvaðan heimsókn kom þegar pantanir eru gerðar í vefversluninni.

Miðlun til þriðja aðila í auglýsingaskyni

Vefkökurnar frá Google og Meta þýða að við miðlum upplýsingum um heimsóknir á vefinn til þessara fyrirtækja í auglýsingaskyni. Það gerir okkur kleift að mæla hvaða auglýsingar skila árangri og að ná til fleiri sem gagnast þjónusta okkar. Google og Meta eru sjálfstæðir ábyrgðaraðilar að sinni eigin vinnslu og geta unnið gögnin utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Upplýsingar um fólk sem leitar til Kvennaathvarfsins vegna ofbeldis eru aldrei notaðar í auglýsingum og þeim er aldrei miðlað til auglýsingakerfa.

Hvernig þú stjórnar vefkökum

  • Þú getur lokað á vefkökur eða eytt þeim í stillingum vafrans þíns. Vefurinn virkar áfram, en hluti tölfræðinnar hverfur.
  • Auglýsingastillingar Google: myadcenter.google.com
  • Auglýsingastillingar Meta er að finna í stillingum Facebook- eða Instagram-reikningsins þíns.
  • Spurningar eða beiðnir: kvennaathvarf@kvennaathvarf.is eða sími 562-6868.

Síðast uppfært 1. ágúst 2026.